er til móteitur gegn móteitri?
22.09.2006 00:49:55 / krush

hmm...

líður ykkur stundum einsog þið séuð að synda um í geisla-atómi?

það er nebbla farið að vera furðu algengt síðustu daga og það fær mann til að hugsa...hvað ef þú þyrftir ekki að hugsa til að vera hugsandi? no more pliable bullshit. bara hrein og bein lína af hrauni.

svo er mar líka löngu orðinn dauðþreyttur á því að vera gefa hestunum.

» 7 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 01:26:30 / krush

...

vegna gífurlega mikilla eftirspurna hef ég ákveðið að taka upp pennann aftur.

vaskaði upp í kvöld. var klukkutíma í því. veit ekki hvort það sé útaf því að ég tek 5 mín á hvern hlut til að vera viss um að hann sé alveg hreinn eða vegna þess að ég blotnaði svo mikið sem orsakaði það að fötin mín íþyngdu mér talsvert og ég þar af leiðandi varð þreyttari fyrr og fór að hreyfa mig hægar. það er ekkert ólíklegt, ég þurfti allavega að skipta um bol þegar ég var búinn, hann var orðinn rennandi blautur. ég ætla kaupa mér svuntu.

allavega þá vil ég bara koma því á framfæri að hann samúel kristjánsson er geðveikur.

ein af mörgum ástæðum þess:

ég fór heim úr skólanum í dag og lagði mig því ég nennti ekki í dönsku. samúel er með mér í dönsku(2) + samúel er með mér í dönsku(2) = ég nennti engan veginn í dönsku(4).

allavega þá hafði ég sett símann á silent á meðan ég lagði mig því ég vissi að að hann myndi hringja í mig til að væla um að það hann vildi alls ekki vera einn í dönsku. anywho, eftir tímann þá hrekk ég upp því samúel kristjánsson er að hamast á glugganum mínum. ég fer og opna fyrir honum, vel sofinn á því og lít svo á símann til að taka hann af silent þegar ég sé að það eru sjötíu og friggin fimm missed calls!! og ÖLL frá samma!

sammi lærði ekkert í þessum ákveðna dönskutíma.

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 17:45:56 / krush

álfar og huldufólk

fór í mína fyrstu svartfugls-veiðiferð. það var snilldin ein. 8)

ég og sammi frændi fórum saman á bátnum hans. sigldum eitthvert útí rassgat, náðum 20 stykkjum EN..dun dun DUN!!! þá bilaði báturinn. :lol:

við þurftum að kalla út björgunarsveitina og læti.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1200888

"Björgunarskipið kemur með bilaða bátinn inn í Hafnarfjarðarhöfn í nótt." já það var einstaklega bjart í gærnótt :$ þeir hjá mbl.is hafa voða gaman af því að henda inn einhverjum myndum og klína við fréttir sem á við. svo eru tímasetningarnar ekki réttar og það var alls ekkert sérstaklega gott í sjóinn.

anywho, var kominn heim kl 3am eftir skrautlegt kvöld :D og þurfti svo að vakna klukkan 7 og mæta í vinnu en þetta var vel þess virði, mun allavega aldrei gleyma fyrstu veiðiferðinni minni.

good times 8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 16:20:25 / krush

misskilningur í nútíma samfélagi

oft hefur verið talað um málsstafi í samskonar samhengi við engislægð hugtök en á þar með alls ekki við að það sé verið að tala um samlæg viðhengi í báðum áttum. þannig er nebbla mál með vexti að forn íslenskan tók oft mállega við málið þegar talað var um höfuðatvik í neikvæðu samhengi sem gerði það að verkum að misskilningur átti sér oft stað meðal ómenntaðra undirljóna í samfélaginu þá á dögum. hafa menn oft reynt að taka fyrir þetta í í gegnum tíðina með því að breyta atviksorðum fyrrgreindar atviks en það hefur ekki tekist betur en að enn þann dag í dag eru menn að rugla saman óeðlilegs atviks og höfuðstöðvum meðal atviks. er þetta orðið það algengt í dag að hinn venjulegi íslendingur er löngu hættur að taka eftir þessu og fellur yfirleitt undir meirihóp samtaksins nú á dögum.

svona misskilninga og málfræðilega glæpi vil ég berjast gegn í dag og hvet ég ykkur öll að standa með mér gegn þessari vitleysu!

ísland aftur heim!!

» 15 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 20:37:24 / krush

fólk er fífl...

og ég er svo sannarlega fólk-ari.... :S

þannig vill svo skemmtilega til að mínir bestustu vinir voru að verða foreldrar í gær :haha:  já búmaster hamstraslátrari og myrra rós voru að eignast litla stelpu í gærdag um 3 leytið.

ekkert nema gott um það að segja nema hvað að búi biður mig um að vera ljósmyndari í skírnarveislunni hennar Láru litlu því ég þykist vera orðinn svo pro 8) jújú allt í góðu. talaði við búa í dag og ég skildi ekki betur en að þetta yrði bara eikkað í kringum sjö.

þannig ég lagði bara af stað um 20 mín í 7 og var ekkert að flýta mér(þetta var í keflavík btw), var bara taka myndir á leiðinni í góðum fíling(á ferð samt sko). svo þegar ég kom í keflavík þá svöruðu búi og myrra ekkert þannig ég þurfti að spurja einhvern hvar þessi spítali væri og loksins þegar ég fann hann og hvar þau voru var skírnin búin 8| jámm. þetta átti víst að vera á slaginu 7 :$ ég veit ekki hvernig ég náði að misskilja þetta svona eða hvort búi sagði ekki í raun og veru bara "í kringum 7". en shittinei ég missti af þessu :^)

mér líður einsog gaurnum í þessum hollywood myndum sem geymdi hringana fyrir vin sinn þegar hann var að fara gifta sig og týndi þeim fyrir brúðkaupið.

skandall.

pabbi hans búa var reyndar með einhverja litla vél og náði einhverjum myndum en ég hafði ætlað að taka video líka og þannig :S

well, ég mun allavega EKKI missa af næstu skírnarveislunni þeirra! :þ

ps. ef ykkur vantar ljósmyndara til að mynda í veislum eða við ýmisskonar tilefni, hafið þá samband við mig.


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 20:23:34 / krush

löwenbrau kastalinn

já mér hefur verið hótað öllu illu af ónefndum aðila ef ég skrifa ekki framhaldssögu með honum. farið á http://blog.central.is/ringulreid til að lesa fyrsta kaflann.

2 kafli.

Eftir öskrin tvö voru vinkonurnar tvær heldur betur orðnar skelkaðar, þegar móselínu datt snjallræðni í hug! og var það að binda saman fullt af litlum flugum á langt snæri og hengja á hurðina á herberginu sem þær voru í og fara svo að dansa kærulausa-kengúrudansinn mikla. þegar þær gerðu það róuðust þær niður og gátu farið að sofa.

vöknuðu þær nokkrum sinnum yfir nóttina útaf fleiri háværum öskrum en þeim var svo skítsama eftir dansinn fyrr um kvöldið að þær sofnuðu bara aftur.

svo um morguninn þegar þær vöknuðu og ætluðu að fara fá sér cocoa puffs þá var allt eldhúsið útí kanilsykri. þótti þeim það mjög undarlegt enda höfðu þær ekki átt kanilsykur í háa herrans tíð. en´þær dóu ekki ráðalausar og fóru að baka kanilsnúða, en eftir að hafa smalað öllum sykrinum saman þá var þetta um 17 kíló af hreinræktuðum kanil.

eftir margra klukkustunda bakstur sáu þær að það væri nú ekki séns að þær tvær myndu torga öllum þessum snúðum einar svo þær ákváðu að efna til snúðaveislu og fór jörgen útí bæ að hengja miða á alla ljósastaura í bænum.

"Mikil kanilsnúðaveisla kl 9 í kvöld í löwenbrau kastalanum. Allir að koma í grímubúningum"

já það var heldur betur glatt á hjalla hjá vinkonunum þennan dag og virtist sem þær höfðu algjörlega gleymt öskrum nætunnar...

kafli 3 kemur von bráðar á  http://blog.central.is/ringulreid


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 18:50:34 / krush

hot stuff

já. hverjum líður ekki vel í nærfötum, íþróttabuxum, bol og þykkum slopp yfir það allt, undir sænginni sinni við hliðin á ofninum sem er stilltur á hæsta og með lokaðan gluggann.

með 39-40 stiga hita upp og niður. og það síðan á sunnudaginn. í hvert sinn sem ég held að ég sé að verða betri þá hrapa ég niður í kanínuholuna.

er að klepra á essu stuffi. man ekki hvenar ég var veikur síðan, var búinn að gleyma hvað það væri viðbjóðslega ógeðslegt.

en jæja, rúmið kallar. :S

» 6 hafa sagt sína skoðun

10.02.2006 16:37:09 / krush

hmmm

það er glatt á hjalla.

farinn að vinna aftur í smíðinni(með skólanum) and i feel alive.

íslandspóstur bless.

já það er fátt betra en að vera drepast í bakinu og fótum eftir erfiðan vinnudag, að gleyma eyrnahlífunum útí bíl og verkja smá í eyrun í hvert sinn sem þú neglir hamrinum í nagla vegna lélegrar undirstöðu, að fá næstum hjartaáfall og missa heyrnina algjörlega þegar múrarinn við hliðin á þér fer að kjarnabora uppúr þurru, að stíga á nagla í lok dagsins...jafnvel þrjá ef vel liggur á manni, að vera vinna með eintómum pungsveittum karlrembusvínum sem kunna fátt annað að segja en gróffengna klámbrandara og að eina salernið á staðnum sé alltaf klósettpappírslaust...

já those are the days.

keep it loose, keep it tight...

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 18:17:30 / krush

public service anouncement

síminn minn er hálfónýtur og sim-kortið er ónýtt.

endilega hringið í mig. ef að það kemur einhver kall sem segir að þetta númer sé utan þjónustusvæðis eða eitthvað álíka, prófiði þá bara að hringja aftur...og aftur...og aftur...

edit: kominn með nýtt kort. sama númer. aldrei að vita nema að ég svari þér ef þú ætlar að hringja í mig vegna þess að ég glataði öllum númerunum sem voru á kortinu og mun kannski ekki þekkja númerið þitt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 09:42:22 / krush

can you die from insomnia?

nei svona í alvörunni.

eflaust er öllum sama um svefnkjaftæðið mitt en mér er sama, ég þarf að tjá mig.

ég man ekki hvenar ég svaf síðast eðlilegum svefni. man ekki einu sinni hvað það er að dreyma....poetic.

ég er rosalega þakklátur fyrir það að gísli sé atvinnulaus fyllibytta sem sefur á daginn. ef ekki væri fyrir gísla væri ég orðinn taugaveiklaður svefnpillufíkill, fastur í spennutreyju á sjöundu hæð í húsi algleymnis.

just one push could end it all together...

ekki einu sinni reyna gísli minn. too late.

mér er farið að líða einsog heróínfíkli í leit að fyrstu sprautunni.

von: its just a phase.

update: brilliant. ég kveikti ljósið og gísli er inní fuckin sófanum!! dont ask

keep it loose, keep it tight


» 28 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 07:32:05 / krush

i lost

já ég tapaði fyrir svefninum í gær. sofnaði eftir íslensku í gær og svaf í fjóra tíma. gat svo bara sofið í 3-4 tíma í nótt. vaknaði um 4 og er núna komin til gísla sem er á 13 bjórnum sínum :lol: á fimmtudagsmorgni. thats gísli for ya. við erum núna að fara elda okkur eikkað juicy

ég á ekki að mæta í skólann fyrr en í leikfimi kl 9:40 og ég er alls ekkert þreyttur.

good times.

...já ég veit, rosalega áhugavert blogg. en það er mikilvægur þáttur í stríði mínu við svefninn að skrá þetta niður. útskýri betur seinna.

lets eat!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 05:04:57 / krush

svefn

já þetta er rugl, hneysa og viðbjóður. 

svefn hatar mig á nóttunni en elskar mig á daginn. það er ekki gaman að vera umlukinn hamingju og ást á daginn en að vera útskúfaður og hataður á nóttunni. þetta verður að taka endi!

hér með lýsi ég yfir stríði á hendur svefns. ég mun ekki fara sofa á daginn og í raun ætla ég ekki að koma nálægt rúminu mínu heldur því mig sterklega grunar að það sé með í þessu!

þetta er farið að vera soldið þreytt(pun intented) að í stað þess að vera sofandi ákl 5 á þriðjudagsnóttu þá er mar að fara til gísla að horfa á einhverja mynd og borða popp. svo mætir mar í skólan klukkan 8.

ja hérna :S

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 05:53:27 / krush

hmm

rúmlega tveir tímar í fyrsta skóladaginn minn. gaman gaman.

það er eila orðið of seint að ætla reyna fara sofna því ef mér tekst það þá á ég aldrei eftir að vakna á réttum tíma.

gísli er yfirleitt sá eini sem er vakandi með mér á þessum tíma og hefur hann smitað mig af þeim ósið að surfa wikipedia. það er svo sem allt í lagi, núna er ég orðinn kyngi fróður af allskonar stuffi sem á aldrei eftir að nýtast mér. það er fínt.

btw avenged sevenfold(a7x) er nýja besta hljómsveit í heimi.

staðreynd: áðan fór ég útí sjoppu með gísla og þegar ég var að labba út úr stigaganginum niðri þá reif ég húninn af hurðinni. ég hélt ég væri orðinn geðveikt sterkur og ætlaði að fara kýla mér leið út í gegnum hurðina þegar ég sá, mér til mikillar gremju, að skrúfurnar voru allar lausar á húninum og því drasli. oh well. ég lifi samt enn þá í þeirri trú um að einn daginn muni ég vakna geðveikt sterkur og þá ætla ég að rífa húnana af öllum hurðum í heiminum!!! bíðiði bara!

update - 20 min yfir 9.

þetta var einmitt skóladagurinn sem ég vonaðist eftir. stutt yfirlit yfir hvað verður gert á önninni og búið. en ástæða fyrir þessu bráðnauðsynlega update-i er sú að ég kíkti á dekkið áðan þar sem ég var að vinna og þar sá ég að einn gaurinn þarna sem er sonur eins plebbans var að vinna en hann hefði átt að vera byrjaður aftur í skólanum en hann er að læra kokkinn....eða ætti ég að segja VAR að læra kokkinn. :lol:

þannig er mál með vexti að hann er með ofnæmi fyrir skelfiski!!! HAHAHHAHHAHAAA þvílíka fuckin snilld!!!! gaurinn sem er búna taka eikkað 2-3 annir í essu getur ekki lengur verið kokkur!! :lol: þvílika kaldhæðni umber ég varla svona snemma morguns(eða seint...) :klikk: :lol: hann var bakvið á vörubílaverkstæðinu þegar þeir sögðu mér þetta þannig ég fór strax til hans að gera grín að honum og hann fór strax fram í fýlu. quote: "HALTU KJAFTI!!!!" haha greyið gaurinn. :haha: auðvitað á mar ekkert að vera strá salti í sárið en ég bara varð!

þetta er svipað og ef það kæmist allt í einu í ljós núna að ég hefði ofnæmi fyrir timbri :lol:

og fyrir ykkur sem haldið að ég sé rosalega slæmur maður fyrir að finnast þetta fyndið að þá vil ég benda á að þetta er svona "you get whats coming to ya" dæmi. etta er gaur sem.....ok þarf ekkert að útskýra betur. whatever :$ en jújú vona samt að hann finna sér annað stuff sem hann vill læra...blablabla

allavega góða nótt

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 04:28:04 / krush

hmm

kl er 424am, ég á samt ekki eftir að sofna fyrr en í fyrsta lagi klukkan 7 og mér leiðist þess vegna hef ég ákveðið að stytta mér stundir næstu tvær mínúturna með því að skrifa um mjög óáhugaverðan hlut. mér finnst hann samt soldið merkilegur.

málið er nebbla að ég fór á stylinn í gær með hönnu pönnu og í fyrsta sinn í sögu heimsókna minna á stylinn fékk ég mér EKKI nr80!!! 8| yep, i said it! ég er spennufíkill!!! ég hef nebbla alltaf fengið mér 80 og stundum aukasamloku með því en í gær, i was feeling wild! svo ég fékk mér heavy special. það var fínt.

..............ps. er að hlusta á nýja pendulum...þrusudiskur sem fær mann til að vilja stökkva fram af svölunum með ímyndaða fallhlíf. þeas ef það væri ekki rigning.

magnað stuff.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6